Klukkan

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Völsungur
  • Stađur: Húsavík
  • Um mig: Ţjálfari: Unnar Ţór Garđarsson

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Sigur í fyrsta leik Lengjubikarsins

14. mars 2011 klukkan 12:13

Jæja stelpur. Ég held að það sé algjörlega kominn tími á að taka þessa síðu upp aftur.  

Völsungur 1-0 Fjarðabyggð/Leiknir 

Völsungur byrjaði í Lengjubikarnum á laugardaginn síðasta, 12. mars. Við fórum á austur og spiluðum á móti Fjarðabyggð/Leikni í Fjarðabyggðarhöllinni. Þar var mikill kuldi eins og vanalega en stelpurnar voru samt sem áður vel stemdar og það var góður mórall og spenningur fyrir fyrsta bikarleiknum. 


Byrjunarlið var:
 Anna Jónína (M), Jóney, Lilja, Ásrún, Magnea, Berglind Jóna (F), Ragna, Anna Halldóra, Ruth, Sigrún Lilja og Helga Björk.  

Bekkurinn: Indíana, Heiðdís, Sonja, Berglind og Elfa.

Markið skoraði Helga Björk á 24. mínútu. 

Hér má sjá leikskýrlsu: http://www.ksi.is/mot/motalisti/leikskyrsla/?Leikur=260285

Næsti leikur er svo á sunnudaginn næsta, 20. mars á móti Tindastól. Sá leikur verður á Akureyri og við mælum með að stuðningsmenn Völsuns fjölmenni í bogann kl. 16.00.

 -Völsungsstelpur.
Völsungur
1 athugasemd

Sigur í fyrsta leik!

28. maí 2010 klukkan 10:57

Álftanes 4 - 5 Völsungur

Mörk:
Sigrún Lilja Sigurgeirsdóttir (16. mín)
Ragna Baldvinsdóttir (35. mín)
Jóhanna Margrét Gunnarsdóttir (44. mín)
Jóhanna Margrét Gunnarsdóttir (54. mín)
Sigrún Lilja Sigurgeirsdóttir (90. mín)

Byrjunarlið: Anna Guðrún (M), Sigrún Lilja, Ásrún Ósk, Ragna, Inda, Anna Halldóra, Jóney Ósk, Dagný Björk, Jóhanna Margrét, Helga Björk og Sonja Sif.
Varamenn: Anna Jónína (M), Þórný, Heiðdís og Lilja Björk


Næsti leikur er nk. miðvikudag 2. júní við Draupni á Akureyri. Leikurinn fer fram í Boganum klukkan 20:00. Áfram Völsungur!

Völsungur
2 athugasemdir

Hafrún Olgeirsdóttir gengin til liđs viđ KR

14. maí 2010 klukkan 14:46
Hafrún Olgeirsdóttir er búin að hafa félagaskipti yfir í KR. Hafrún er búin að vera einn af lykilmönnum liðsins síðan mfl. kvenna hóf göngu sína á ný og hefur spilað 64 leiki í deild og bikar og skorað 66 mörk. Mikil eftirsjá verður að Hafrúnu en um leið óskar fréttaritari henni góðs gengis í sumar. Fréttaritari hitti Hafrúnu í vesturbæjarísbúðinni og spurði hana spjörunum úr.

Afhverju KR?
- bara spennandi lið og buðu vel.

Hver eru markmið þín fyrir sumarið?
-að sjálfsögðu að komast í byrjunarlið hjá mfl.

Var Aron Bjarki að þrýsta á þig að fara í KR?
-já það var bara vandræðalegt hvernig hann lét..

Hver er fyrirmynd þín í boltanum?
-Elfar Árni Kútason.. ekki spurning!

Hvað verður þitt lið á HM?
- spánn..einungs útaf því að minn heittelskaði Fabregas er spænskur.

Notar þú einhverja sérstaka rútínu fyrir leiki?
-nei eiginlega ekki. Nema ég verð að vera með tyggjó í upphitun

Á maður von á því að sjá þig í fögru grænu treyjunni á ný?
- já avitað.. þetta er bara tímabundið;)

Eitthvað að lokum?- já áfram völsungur að sjálfsögðu ;)

Hafrún ætlar sér stóra hluti í sumar.

Völsungur
2 athugasemdir

Naumt tap í dag

08. maí 2010 klukkan 19:36
Stelpurnar töpuðu naumlega gegn Þrótti í úrslitleik lengjubikarsins í dag. Stelpurnar voru aðeins 13 í hóp þar sem Inda, Ragna og Anna Guðrún áttu að fara með flugi í dag en ekki var flogið. Anna Jónína var því milli stanganna í dag og stóð sig vel.

Lið Völsungs: Anna Jónína Valgeirsdóttir, Anna Halldóra Ágústsdóttir, Ásrún Ósk Einarsdóttir, Berglind Jóna Þorláksdóttir, Dagný Björk Aðalsteinsdóttir, Hafrún Olgeirsdóttir, Sigrún Sigurgeirsdóttir, Helga Björk Heiðarsdóttir, Jóhanna Margrét Gunnarsdóttir (Heiðdís Hafþórsdóttir '70), Jóney Ósk Sigurjónsdóttir, Sigrún Björk Aðalgeirsdóttir (Sólveig Guðrún Aðalsteinsdóttir ‘115).

Þróttarar komust yfir eftir aðeins 11 mínútna leik. En eftir leikinn var mikið jafnræði meðal liðanna. Eftir rúman hálftíma leik jafnaði Hafrún metin og bætti Sigrún Lilja öðru marki við fljótlega. Góð barátta var í liðinu og í seinni hálfleik var liðið mjög skipulagt og beitti hættulegum skyndisóknum. Þróttarar náðu þó að jafna og koma leiknum í framlengingu. Í seinni hluta framlenginar skoruðu svo þróttarar og héldu því út leikinn og eru því Lengjubikarsmeistar C þetta árið.

Það er mjög svekkjandi að hafa tapað þessum leik í dag en engu að síður eiga stelpurnar hrós skilið fyrir góða baráttu og mjög góðan leik í dag. Þróttarar eiga að vera eitt besta liðið í 1. deildinni í ár og þær fengu sko að finna til tevatnsins í dag. Þá er bara um að gera að byggja á þessu og vinna Þróttarana í sumar, því það er nú það sem skiptir máli ;)

Mæli með umfjölluninni á fótbolta.net -->

http://fotbolti.net/fullStory.php?action=viewStory&id=90881

úr leiknum í dag, Anna Jónína með flotta vörslu. Mynd: Systir Kjarra

Völsungur
1 athugasemd

Völsungur í úrslit !

02. maí 2010 klukkan 19:11
Áðan tryggðu stelpurnar sér sigur í sínum riðli með 1-0 sigri á Draupni. Helga Björk skoraði markið og nú er ljóst að stelpurnar eru komnar í úrslitaleikinn. Þar verða andstæðingar þeirra annaðhvort Þróttur eða Selfoss því ekki hefur komið upplýsingar um leik Þróttara í dag. Ekki er ljóst hvar leikurinn verður spilaður en hann verður laugardaginn 8. maí og verður þá vonandi hægt að fagna tvöföldum sigri, þar sem strákarnir spila einnig úrslitaleik á þeim degi. En glæsilegur sigur í dag staðreynd og nánari umfjöllun um leikinn síðar.
Völsungur
2 athugasemdir

Mikilvćgur leikur í dag

02. maí 2010 klukkan 11:36
Í dag spilar Völsungur á móti Draupni í Boganum klukkan 15:00. Þessi leikur skiptir gríðarlega miklu máli því með sigri í dag tryggja stelpurnar sér 1. sætið í riðlinum. Jafntefli gæti verið nóg en þá þarf að bíða og vona að Tindastóll vinni ekki stórsigur fyrir austan.


     Félag      L  U  J   T  Mörk   Net    Stig
1. Völsungur  4  3  0  1  12-3    9        9
2. Draupnir    4  2  1  1  9-5      4        7
3. Tindastóll  4  2  1  1  9-6      3        7


Áfram Völsungur


Völsungur
Engin athugasemd

Mikilvćgur sigur fyrir austan

27. apríl 2010 klukkan 11:44
Sindri 1-2 Völsungur
                       Hafrún
                       Sigrún Lilja


Byrjunarlið:

                Anna G
Sigrún B., Inda, Jóney, Anna H.
                Ragna
Sigrún L, Hafrún, Helga, Jóhanna
                Heiðdís

Varamenn: Sólveig og Ásrún (sem gat þó ekki spilað sökum meiðsla)


Völsungur ferðaðist með fámennan hóp til Reyðarfjarðar að þessu sinni sökum þess að 3. flokkur var að spila á æfingarmóti í Boganum alla helgina. Af þeim sökum voru einungis 13 í hópnum en síðan átti Dagný að koma með flugi til Egilsstaða en allt flug var fellt niður á sunnudaginn þannig að hún komst ekki. Í upphitun kom svo í ljós að Ásrún gat ekki spilað sökum meiðsla þannig að Sólveig var eini varamaðurinn.


Fyrri hálfleikurinn var góður hjá stelpunum. Sigrún Lilja fór mikinn og fékk tvö færi snemma leiks sem hún náði ekki að nýta. Völsungur hafði töluverða yfirburði í fyrri hálfleik og náði forystunni verðskuldað um miðjan hálfleikinn þegar Hafrún skoraði gott mark. Fékk boltann í teignum og í rólegheitum lagði hún boltann fyrir sig og renndi honum í hornið. Stuttu seinna slapp svo Sigrún Lilja í gegn eftir stungusendingu frá Rögnu, lék á markmanninn og skoraði auðveldlega.

Sindrastelpur beyttu mikið löngum sendingum og voru þær nokkrum sinnum nálægt því að komast í gegn en fengu þó eitt dauðafæri maður gegn manni sem Anna varði glæsilega. Staðan því 2 - 0 í hálfleik.

Eins og í síðustu leikjum þá breyttist leikur liðsins til hins verra í seinni hálfleik. Sindrastelpur minnkuðu muninn í 1- 2 eftir rúmar 30 sek leik í seinni hálfleik með góðu skoti fyrir utan teig efst í hornið hægramegin við Önnu. Óverjandi skot fyrir Önnu. Megnið af seinni hálfleik voru Völsungsstelpur í miklu barsli. Lítið gekk að halda boltanum, sendingarnar ekki nógu góðar og varnarlega féllu þær of langt frá sínum manni og hjálpuðu hvor annarri of lítið. Sindrastelpur fengu oft á tíðum að labba með boltann framhjá leikmönnum okkar og fengu of mikinn frið til að spila sín á milli. Þær náðu þó ekki að komast í nein dauðafæri en áttu einhver skot og fyrirgjafir sem úr skapaðist hætta. Bestu færin í hálfleiknum fengu hins vegar Völsungsstelpur á síðasta korterinu. Sigrún Lilja var óheppin þegar hún skaut í stöngina af stuttu færi eftir fyrirgjöf. Sigrún fékk svo annað færi þegar hún fékk stungusendingu inn í gegnum miðja vörnina hjá Sindra en skaut beint í markmanninn og það sama gerði Heiðdís þegar hún fékk nánast eins færi stuttu seinna.


En mikilvægur sigur í erfiðum leik en klárlega verður þjálfarinn að skoða hálfleiksræðuna sína þar sem stelpurnar virðast ekki koma nógu ákveðnar í seinni hálfleik. Eins verða stelpurnar að nýta færin betur því þessi leikur hefði geta verið búinn í hálfleik ef færin hefðu nýst og Sindri hefði getað refsað okkur illilega eins og Höttur gerði um daginn.


Staðreyndin er hins vegar sú að við erum enn á toppnum og verðum þar fyrir síðustu umferðina eftir úrslit gærdagsins. Því er bara að peppa sig upp í það að fara til Akureyrar næsta sunnudag og vinna síðasta leikinn og tryggja sig þannig inn í úrslitaleikinn í Lengjubikarnum.


Áfram VÖLSUNGUR


Sigrún Lilja skoraði seinna mark Völsunga.
Völsungur
Engin athugasemd

Góđur 3-0 sigur á Tindastól

19. apríl 2010 klukkan 16:19
Tindastóll - Völsungur 0 - 3
23´ Helga Björk
27´ Jóhanna
30´ Jóhanna

Byrjunarlið: Anna G, Sigrun B, Jóney, Inda, Anna H, Ásrún, Hafrún, Helga, Jóhanna, Sigrún L, Heiðdís

Bekkur: Sonja, Lilja, Þórný, Sólveig, Ragna


Nokkuð jafnræði var með liðunum á fyrstu mínútum leiksins án þess þó að annað liðið næði að skapa sér nein færi. Fyrsta hálffærið leit dagsins ljós á 7 mínútu þegar Jóhanna náði að vinna boltann af hægri bakverði stólana og komast framhjá markmanninum en varnarmaður bjargaði í horn. Ekki skapaðist hætta úr þeirri hornspyrnu. Þarna fór Völsungur að taka yfirhöndina á vellinum jafnt og þétt. Sigrún komst innfyrir tveim mínútum seinna en markmaður Stólana greip fyrirgjöf hennar. Á elleftu mínútu komst Sigrún aftur upp að endamörkum en fyrirgjöfin fór afturfyrir markið.
Vörnin hjá Völsungi virkaði mjög örugg í fyrri hálfleik, spilaði hátt og hirti alla löngu boltana frá Tindastólsstelpum nokkuð létt. Anna var líka mjög örugg þar fyrir aftan og lét vel í sér heyra.
Á 7 mínútna kafla um miðjan fyrri hálfleik gerði svo Völsungur út um leikinn með 3 góðum mörkum. Fyrsta markið skoraði Helga Björk eftir mistök hjá markmanni Tindastóls. Jóney átti þá hreinsun úr vörninni og hægri bakvörðurinn fellur þegar hún er að senda boltann til baka á markmanninn. Heiðdís og Jóhanna setja góða pressu á vörnina og markmanninn sem reynir að hreinsa en sparkar beint á Helgu sem tekur við boltanum á miðjum vallarhelmingi Tindastóls, leggur boltann fyrir sig og setur hann á markið þar sem markmaðurinn nær ekki til hans á hlaupunum til baka.
Tindastóll fékk svo dauðafæri til að jafna á 27. mínútu eftir aukaspyrnu sem sveif yfir vörnina og fyrir fætur sóknarmanns en Anna var snögg á móti og lokaði vel og hélt boltanum. Anna sparkaði svo boltanum fram og eftir smá klafs á miðjunni nær Ásrún sendingu upp á Heiðdísi á toppnum sem tekur vel við boltanum og leggur hann út til hægri þar sem Helga var mætt. Hún leikur á bakvörðinn og sendir góða sendingu afturfyrir vörnina hjá Tindastól og þar kom Jóhanna í gott hlaup á fjærstöngina og leggur boltann framhjá markmanninum með vinstri.
Tveim mínútum síðar tekur Sigrún Björg gott hlaup upp hægri kantinn eftir að boltinn var búinn að ganga vel frá vinstri til hægri. Það er brotið á Sigrúnu um miðjan vallarhelming Tindastóls. Inda tók aukaspyrnu sem þær skalla í horn. Inda tók þá góða hornspyrnu hægra megin frá sem sveif yfir bæði Heiðdísi og Helgu á nærstönginni en féll fyrir Jóhönnu fyrir miðju marki og hún nær að pota boltanum í markið af stuttu færi og staðan orðin 3 - 0.
Það sem eftir lifði fyrri hálfleik var Völsungur áfram betri aðilinn og Tindastóll náði ekki að skapa sér nein færi. Jóney átti góðan sprett á 35. mínútu og eftir flott þríhyrningsspil við Hafrúnu náði hún ágætu skoti rétt fyrir utan vítateig sem markmaðurinn varði. Engin fleiri færi litu dagsins ljós í fyrrihálfleik en það sem einkenndi restina af honum voru gríðarlega mörg innköst.
Seinni hálfleikur var hins vegar alls ekki nógu góður hjá Völsungsstelpum. Á köflum var hreinlega eins og við værum áhorfendur inná vellinum sem væru reyna að forðast að vera fyrir. Það kom þannig oft fyrir að Tindastólsstelpur fengu að hlaupa með boltann framhjá okkar stelpum án þess að reynt væri að taka boltann af þeim. Tindastóll reið á vaðið og náði undirtökunum í leiknum og fengu hættulegri færi í seinni hálfleik. Þær sluppu í gegn á 51. mín en Anna varði máttlaust skot. Anna þurfti aftur að verja frekar slappt skot á 55. mín og aftur á 59. mín en besta færi Tindastóls kom á 82. mín. Inda tekur hornspyrnu sem Tindastóll nær að hreinsa út úr vítateignum og bruna í hraða sókn. Það kemur stungusending upp miðjan völlin og sóknarmaðurinn fær frítt hlaup með boltann inn í teiginn en Anna fyrirliði steig þar fram fyrir skjöldu og varði frábærlega og var svo snögg á fætur til að hlaupa út til vinstri og út úr teignum til að hreinsa boltann í innkast.
Eftir þetta áttu Völsungsstelpur svo nokkra sénsa en síðasta sendinginn rataði ekki rétta leið. En í heildina góður sigur eftir frábæran fyrri hálfleik en frekar slakan seinni hálfleik. Jákvæðu punktarnir voru þeir að við héldum hreinu og skoruðum 3 mörk þar af eitt eftir hornspyrnu sem var í raun orðið bara tímaspursmál. En stelpurnar þurfa að hafa meiri trúa á sjálfum sér og þora að spila boltanum sín á milli meira. Sendingarnar þurfa oft á tíðum að vera vandaðri og betur valdar. En góður sigur á fínu liði og komnar í bílstjórastætið í riðlinum. Nú er bara að halda því með því að vinna báða leikina sem eftir eru.

Völsungur
6 athugasemdir

Upphitun: Völsungur - Tindastóll

17. apríl 2010 klukkan 17:01

Á morgun, sunnudaginn 18. apríl taka stelpurnar á móti Tindastól í Lengjubikarnum. Leikurinn hefst klukkan 19:00 í Boganum. Stólarnir eru á toppnum í riðlinum með 4 stig eftir 5-0 sigur á Hetti og 1-1 jafntefli á móti Sindra. Því er leikurinn á morgun mjög mikilvægur og getum við komist í 1. sæti riðilsins. Þessi lið hafa mæst tvisvsr í vetur og hafa unnið sitthvorn leikinn 2-1 og verður þetta því líklega hörku leikur á morgun.


Áfram Völsungur

 

Völsungur
1 athugasemd

Víđir í Garđi ekki međ í sumar

16. apríl 2010 klukkan 13:48
Víðir í Garði eru hættar við þátttöku í Íslandsmótinu í sumar. Þær áttu að vera í riðli með Völsungi og því mun fækka um 2 leiki miðað við fyrri áætlun.
Völsungur
Engin athugasemd